Byggingaframkvæmdir á Vík

Myndbandið var tekið úr dróna við Vík á Kjalarnesi þann 17. júní 2017 en þar standa yfir miklar byggingaframkvæmdir á landi SÁÁ. Tugir manna eru að störfum innandyra í nýbyggingunum við að fullgera nýja, glæsilega meðferðarstöð sem tekin verður í notkun í haust, um svipað leyti og því er fagnað að 40 ár eru liðin frá stofnun SÁÁ þann 1. október 2017.