Fíkn – íslenska leiðin: Þórarinn Tyrfingsson
Þórarinn Tyrfingsson, forstjóri sjúkrahússins Vogs, ræddi um fíknlækningar, starfið á Vogi og meðferð SÁÁ, í ítarlegu viðtali við Pál Magnússon á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gær, fimmtudaginn 10. mars. Viðtalið var fyrsti þáttur af fjórum sem SÁÁ og Hringbraut hafa átt samstarf um að gera.