Sjúkdómurinn
Fyrirlestur þar sem Þórarinn Tyrfingsson fjallar um sjúkdóm áfengis- og vímuefnafíknar. Fyrirlesturinn var tekinn upp 2005.
Þekking á áfengissýki- og vímuefnafíkn hefur vaxið hröðum skrefum undanfarin 30 ár. Munar hér mestu um undraverðar framfarir í þekkingu okkar á uppbyggingu og starfsemi heilans og áhrifum vímuefna á hann. Í kjölfarið hefur áhugi heilbrigðisstarfsmanna á vímuefnafíkn aukist sem aftur hefur leitt til mikilla framfara í meðferð við vímuefnafíkn. SÁÁ hefur notfært sér þetta og miklar breytingar til batnaðar hafa orðið í áfengis- og vímuefnameðferðinni sem samtökin bjóða upp á undanförnum árum.
Hér má horfa á fyrirlestur Þórarins Tyrfingssonar, efni sem upphaflega var gefið út á DVD til styrktar bráðamóttökunni á Vogi.